annahusky.bloggar.is
Síđasta bloggiđ!Anna Francesca

Jæja, þá er komið að því !
Þetta er síðasta bloggið sem mun birtast á þessari síðu!
Ég ætla að fara að vinna í því að láta búa til fallega heimasíðu fyrir mig og fréttir af okkur munu koma þaðan.
Það er búið að vera mjög áhugavert að halda uppi svona bloggi, ég áttaði mig alltaf meira og meira á því hverjir lásu bloggin mín og margir misánægðir með skoðanir mínar á hlutunum. En jú, ég má hafa skoðanir á hlutum en ætli ég verði ekki bara að kaupa mér dagbók og skrifa mínar skoðanir og hugmyndir í hana svona í framtíðinni.
En framhaldið hjá okkur Steinari:
Steinar útskrifast sem Eðlisrænn Landfræðingur næsta vor, ég ætla að klára eins mikið og ég get af skólanum mínum og tek afganginn í fjarnámi.
Við flytjum til Svíþjóðar næsta sumar og Steinar fer í Háskólann í Stockhólmi næsta haust og ég fer í fjarnám og ætla að vinna með.
Við ætlum að stækka fjölskylduna okkar næsta sumar með Golden Retriever tík og munið þið að sjálfsögðu fá fréttir af okkur af heimasíðunni okkar sem við ætlum að láta gera fyrir okkur svona eftir áramótin.
Við stefnum á hundaþjálfunarnám þegar við flytjum til Svíþjóðar.
Ég ætla að hafa myndirnar áfram inn á síðunni og síðan verður eins og hún er svona eitthvað áfram.
Sjáumst síðar !
Kveðja, Anna Francesca, Steinar og hundarnir
Ţađ er kominn vetur !Anna Francesca

humm... blogg segiði... þið biðjið ekki um lítið !
Uff það er bara kominn vetur, ég vildi óska að vetur þýddi ekki rigning og slabb og ógeð, heldur bara hreinan og fallegann snjó ! Ég er ekki mikið jólabarn, hef ekki hingað til verið mikið fyrir jólin, allt þetta stress og öll þessi læti. Við skötuhjúin ætlum að hafa það bara kósí um jólin og ekkert stress takk fyrir!
Ég verð svolítið að vinna um jólin og er meðal annars á kvöldvakt á þorláksmessu og morgunvakt á aðfangadag... meira veit ég ekki enn.
En staðan er líklegast þannig að ég ætla að hætta að blogga svona fljótlega, allaveganna verða ekki mörg blogg til viðbótar held ég.
Ég ætla að koma mér upp heimasíðu, kaupa mér lén og svoleiðis og ég get sett fréttir þaðan.
Mest langar mig að sækja um ræktunarnafn og hafa það sem nafnið á heimasíðunni.. en ég hef bara ekki hugmynd um hvað ræktunarnafnið mitt á að vera svo að ég bið ykkur um smá hjálp !
En ég er bara á fullu í skólanum, ræktinni, hundunum, sjúkraþjálfun og öllu hreinlega!
Ég hætti í 3 fögum af 11 því að ég réð ekki við svona mikið. Ég er búin að vera mjög slæm í bakinu og verst hvað það leiðir út í hendurnar og fæturnar.
Þetta vonandi fer að lagast, ég lagast með sjúkraþjálfuninni og hreyfingunni vonandi einhverntíman.
Ég er búin að vera rosalega dugleg í ræktinni undanfarið, fer svona 4-5 sinnum í viku. Bæði í tíma og svo bara að æfa sjálf, bara æðislega gaman.
Ég ætlaði í spinning í dag en ég er slæm í dag því að þessir blessuðu mánaðarlegu "magaverkir" eru að drepa mig og það leiðir svo út í bakið á mér, svo að Steinar elskan er bara alveg extra góður við mig.
Versta hvað manni langar alveg sjúklega í nammi og bragðarefi og svona þegar maður er með þetta mánaðarlega ! Og ég hef ekki þessa löngun til þess að fara í ræktina eins og venjulega!... en nóg um túrverki !!!
En ég er búin að vera í prófum alla vikuna og er að bilast !
1-2 próf á dag ! Og ég er ekki einu sinni í þessum formlegu prófum enda er önnin ekki búin og það er allt of stutt þangað til þessi formlegu próf byrja !
En ég verð að játa að þetta hjálpar aðeins við undirbúninginn á prófunum, ég er soldið svoleiðis að ég læri ekki nema bara rétt fyrir próf og ritgerðir og svoleiðis.. ég veit, þvílíkt kæruleysi !
En yfir í eitthvað skemmtilegt :
Laugarvegsgangan árlega er næstu helgi og ætla ábyrgir hundeigendur og hundaáhugafólk að hittast við hlemm klukkan 13 á laugardag og ganga laugarveginn. Þetta hefur hingað til verið mjög skemmtilegt og býst ég við skemmtilegri göngu á laugardaginn. Síðar um kvöldið ætlum við Steinar að skella okkur á skrall með ábyrgu hundeigendunum, ég fór í fyrra á það og skemmti mér konunglega!
Svo eru aðeins 2 vikur í NORDIC WINNER !!!
Ég vona að þessar tvær vikur verði fljótar að líða !!!
Við erum stór hópur að fara saman og hlakkar mig ekkert smá til !!!
Svona mínar aðal tegundir eru á sunnudeginum (Golden og Siberian Husky) og svo verður Dobermanninn sýndur á laugardeginum.
Ungir sýnendur eru á sunnudeginum, það verður svaka dagur !
Verst að ég á enga góðar myndavél sem getur tekið góðar myndir, vonandi finn ég einhvern góðhjartaðann sem vill lána mér.
Ég verð nú að eiga minningar úr þessari frábæru ferð !
Þannig að næstu 2 vikurnar þangað til að ég fer út þarf ég að læra eins og brjálæðingur, vinna eina helgi, tapa mér í ræktinni (er nú þegar búin að missa 5 kg.) og fara í nokkra ljósatíma svo að ég verði nú ekki eins og draugur þarna úti !
... já og plokkun !
Mamma gamla er búin að vera svaka gella upp á siðkastið (síðasta mánuði) búin að fara 2 til útlanda í helgarferðir, fyrst til Ítalíu og svo til Eistlands held ég ... ég er ekki alveg viss. Hún tapaði sér víst í búðunum, það sýndist mér allaveganna á gellunni þegar ég kom við heima hjá henni áðan.
Það styttist alltaf í að við Steinar flytjum til Svíþjóðar, við erum byrjuð að undirbúa okkur, leita okkur að húsi og svoleiðis !
Versta er að mig vantar svo vinnu þarna úti... ég þarf einhvernveginn að finna út hvernig ég get fengið vinnu. Ég er búin að vinna sem þjónn á fínum veitingarstað og svo á bar, svo var ég að brölta á hestum í mörg ár og vann hjá tamningarmanni í 4 ár, svo er ég að vinna við aðhlynningu á hjúkrunarheimili núna! Ég tala íslensku, ensku, ítölsku og smá í dönsku (er allaveganna búin að vera að læra hana í allt of mörg ár) en ég tala ekki sænsku en hún hlýtur að koma fljótt !
Steinar fer beint í nám þegar við flytjum út, hann fer í mastersnám í Loftlagsfræði. Hann er að útskrifast í vor úr Háskólanum og verður þá með BS gráðu í Eðlisrænni Landfræði ! Hann er svo duglegur þessi elska !
Ég get ekki beðið eftir að fá nýja fjölskyldumeðliminn á næsta ári, en nýji fjölskyldumeðlimurinn er af tegundinni Golden Retriever.
En ætli ég sé ekki búin að babbla nóg í bili !
Sjáumst hress og spræk á laugardaginn í Laugarvegsgöngunni :)
Kv. Anna Francesca
Heilsan ögn skárri !Anna Francesca

Ég dreif mig á fætur í morgun og leið já bara allt í lagi svona miða við hvernig mér er búið að líða undanfarna daga!
Verkirnir miklir en ég þraukaði samt... Tók bara eina 600 mg ibufen + eina 400 mg ibufen.
Ég fór að hafa mig til í skólann sem virtist taka óra langan tíma og lagði ég soldið seint af stað.
Þegar ég var að koma að Litlu Kaffistofunni þá byrjaði ég að fá þessa svaðalegu krampa annan fótinn og þurfti ég að stoppa á Litlu Kaffistofunni og standa upp og reyna að losna við krampann og verkina... ég varð ögn skárri eftir það og hélt áfram í skólann með soldið mishröðum akstri út af krömpunum!
Mér var alveg um og ó að komast í skólann því að í fyrsta tíma þurfti ég að fara með fyrirlestur.. sem ég átti reyndar að fara með á mánudaginn en þar sem ég gat ekki hreyft mig þann daginn fékk ég að fara með fyrirlesturinn í dag.
Ég mætti að sjálfsögðu allt, allt of seint en kennarinn skildi mig alveg og var voðalega skilningsríkur. Og svo gat ég ekki setið í tímanum út af verkjum svo að ég fór bara eftir fyrirlesturinn! Ég gleymdi meira að segja að kynna mig!
Sem betur fer þekkir kennarinn mig undir nafni (enda afbragðsnemandi náttúrulega
Hvað þýðir það þegar kennararnir muna manns eigin nafn en ekki annarra?
Ég er nú reyndar búin að vera hjá þessum kennara áður og stóð ég mig alveg svakalega vel, var meira að segja boðið til útlanda í áfanganum en ég komst ekki því að Crufts var á sama tíma.
En ég vona að ég fari nú að lagast aðeins, það er nú sýning næstu helgi!
Ég ætla að fara í sálfræði á eftir og svo þarf ég að sjá til hvort ég þrauka eitthvað meir!
Okkur skötuhjúunum hlakkar alveg rosalega til að fara til Noregs á Nordic Winner sýninguna í nóvember.
Ég fékk e-mail frá ræktandanum sem ég er að fá hvolp frá og hún kemst ekki á Nordic Winner því að það er einhver international sýning sömu helgi ! Hefði verið geggjað gaman að sjá hana og hennar guðdómlegu hunda!
Margrét, ef þú sérð þetta þá langar okkur nokkrum hérna sem erum að fara svo á Gala showið, getur þú keypt miða og við borgum þér svo ?
Eða hvernig fer þetta fram ? Hvar getur maður keypt miða ?
Ég þarf að redda ýmsu fyir næstu helgi, setja saman einhverja tegundarlýsingu og finna til einhverjar myndir fyrir básinn hjá Siberian Husky.
Öll hjálp vel þegin að setja upp básinn!
Huskyarnir verða baðaðir í vikunni... Sól, Jörð, Latino og Klettur.
Sól er í frekar litlum feld en ætli ég þurfi ekki að bjarga því sem er á henni...
Mánaskin verður ekki sýnd, hún er hölt og feit !
Nýju vörurnar voru að koma á markað hérna á Íslandi Plus Puppy heilla mig alveg svakalega og ætla ég að koma við hjá henni Ástu Maríu í dag eða á morgun og versla svolítið.
www.halsakot.is/verslun !
Það er bara svo margt sem mig langar í !
En það er nóg að gera í dag hjá mér svo að ég ætla ekki að eyða meiri tíma í blogg núna...
Hendi inn sætri mynd af mæðgunum Ísey og Sól í leiðinni !
Kv. Anna Francesca
Sýning nćstu helgi og ég get ekki gengiđ almenninlega einu sinni !Anna Francesca

Ætli ég verði ekki að henda inn einu bloggi núna þegar ég er loksins búin að ná fartölvunni af Steinari.. staðan er nefninlega þannig að ég get ekki setið lengi uppi í einu vegna bakverkja og því get ég ekki notað venjulegu borðtölvuna.
En ég er búin að vera rúmliggjandi síðan á sunnudagskvöldið, ég get lítið gengið og er með mikla verki í neðanverðu bakinu og með doða og krampa í fótunum!
Ég veit hvað þið eruð að hugsa núna... það er sýning næstu helgi !!!
Ég verð bara að sjá til hvernig þetta fer allt saman, mér finnst ég aðeins vera að lagast.. enda ekki skrítið miða við allar þær verkjatöflur sem ég er að bryðja !
Ég er búin að vera í góðu sambandi við læknirinn minn og hún telur að ég sé með brjósklos! Ekki gott mál en ég fer til hennar á morgun og hún sendir mig í alls herjar myndatökur !
En dagskráin mín næstu helgi lítur svona út :
Laugardagur
Klukkan 9.00-9.12 : Basset Hound
Klukkan 12.47-13.37 : Ensku Bulldog
Sunnudagur
10.16-12.19 : Þýskur Fjárhundur
12.45-15.17 : Amerískur Cocker Spaniel
Ég get ekki sýnt nokkrar tegundir sem ég hafði ætlað mér að sýna t.d. mína eigin tegund : Siberian Husky því að dagskráin hittist svo svakalega á !
En Steinar er að fara í einhverja ferð á sunnudaginn til föstudags á vegum skólans. Ég er auðvitað ekki sátt með að hann sé að fara svona frá okkur Champ en hann þarf víst að gera þetta til þess að útskrifast.
En frekar glötuð dagsetning, ég væri svo til í að hafa hann hjá mérá sýningunni.
En við Champ erum sem sagt ein heima alla næstu viku... heimsóknir vel þegnar!
Ætla ekki að hafa þetta lengra í bili !
Kv.Anna Francesca
Ćđislegur dagur... ţrátt fyrir bakverkAnna Francesca

Í dag fór ég ekkert í skólann... ég er mjög slæm í bakinu og ákvað að vera heima og hvíla mig!....
Á hvíldardeginum mikla gerði ég lítið annað en að skoða hunda á netinu og slappa af.
Ég fór á Westminister síðuna og ákvað að skoða video af Basset Hound... ég átti bara ekki orð! Handlerarnir (sýnendurnir) hlupu með hundana! Ég var alveg undrandi því að ég vissi ekki að það ætti að hlaupa með Bassetinn...
Ég er að sýna Bassetinn hennar Dísu og hann getur sko alveg hlaupið... svo að ég var bara ánægð
En uppstillingin gæti orðið vandamál hehe !
Svo var eitt voðalega krúttlegt sem ég sá... Bassetinn er settur upp á borð þegar dómarinn skoðar hann og það var svona hallandi gangbraut upp á borðið... bara fyndið !
Svo fann ég myndir heima hjá mömmu í gær af honum Heimskauta Nætur Rökkva siðan í sumar. Rökkvi er kominn á nýtt heimili, ég man ekki hvort ég sagði ykkur það en hann býr hjá vini mömmu sem er leiðsögumaður (eins og mamma) og maðurinn sem heitir Einar by the way fer 3 sinnum upp á Hvannadalshnjúk og tekur Rökkva að sjálfsögðu með sér og Einar lætur Rökkva draga sig á gönguskíðum um allan hnjúkinn!
Og svo kúrir Rökkvi sig í snjónum eftir langan vinnudag...
Rökkvi hefur farið á tvær sýningar og gengið alveg mjög vel, á fyrstu sýningunni sinni vann hann tegundina og grúbbuna og fór í best in show !
Hann er alveg afskaplega fallegur hundur og ég er svo ánægð fyrir hans hönd hvað honum líður vel á nýja heimilinu!
Finnst ykkur hann ekki guðdómlega fallegur ?
Ég fékk send heim svona viðurkenningarskjöl frá HRFI fyrir að hafa farið á ræktunarnámskeiðin tvö... vá hvað það var gaman á námskeiðunum!
Þessi ræktunarnámskeið eru ansi öflug... ég og Steinar byrjuðum saman á fyrsta ræktunarnámskeiðinu okkar hí hí
.. og auðvitað fékk steinar viðurkenningarskjöl líka !
En ég ætla pottþétt aftur að fara á ræktunarnámskeið ef það er boðið upp á það!
En ég er búin að vera í allan dag að blogga, er bara búin að vera með gluggan opinn, ég, Steinar og Champ vorum að koma inn úr göngutúr. Við skelltum okkur í fjöruna skötuhjúin með barnið... allt voðalega rómantískt ![]()
En best að fara að borða ís með bláberjum og jarðarberjum út í mmm...
Kv. Anna Francesca
Elliđavatnsganga í dag !Anna Francesca
Jæja, langur dagur framundan í dag... ekkert slæmur samt !
Ég er i eyðu núna, fékk að sofa aðeins út í morgun til níu og fór svo á netið og sá að kennarinn minn er veikur sem ég á að vera hjá núna.
Svo er sálfræði í þriðja tímanum og svo eftir matarhlé eru íþróttir og síðan enska sem ég reyndar missi af soldið því að ég setti mig í vitlausan tíma hjá sjúkraþjálfaranum.
En svo eftir sjúkraþjálfun ætla ég, Ágústa "sys"og Saga að labba í kring um Elliðavatnið.
Ég ætla að taka hann Gunnarsholts Joop með mér, Ágústa ætlar að taka Dimmu Dobermann með sér og Saga ætlar að taka Labrador með sér sem hún er að fara að sýna.
Þessi göngutúr verður svona sýningarþjálfunargöngutúr!.. ekki er það að maður brennir nokkrum kalóríum
Ágústa ætlar að sýna Dimmu í ungum sýnendum og veitir ekki af að æfa brjálæðinginn aðeins hehe! Dimma litla er alltaf í stuði !
Ég er að fara að sýna hann Gunnarsholts Joop eins og ég hef gert undanfarnar sýningar en hann kann þetta drengurinn enda svo gaaasalega klár drengur ! En Joop er Schafer og er svona dagsdaglega kallaður Max, en ég kýs að kalla hann Joop!
Það er rosalega skrítið samt að vera bara að sýna örfáa Schafera það vantar alveg stóran hóp og sakna ég þeirra alveg hrikalega mikið.
Ég er einmitt undanfarið búin að hugsa svo mikið til Jollyar, Xolu, Baronessu, Dux, Rambo og litlu Ollu. Þessir hundar áttu svo stóran stað í hjartanu í mér... og eiga enn.
En það tekur svona tvo og hálfan tíma að labba í kring um vatnið, ég fór síðast á laugardaginn með Bryndísi, Báru og Ágústu og voru allir Cockerarnir teknir með og Sól líka.
Bryndís greyið fór auðvitað strax í að baða og blása cockerana þegar hún kom heim enda haugskítugir upp fyrir haus.
Í gær var ég að drepast í bakinu og í höfðinu allan daginn og fór að sofa klukkan tíu í gærkvöldi... ekkert smá snemma.
Ég gerði nú samt heiðarlega tilraun til þessa að horfa á myndina Memento en ég sofnaði á fyrstu fimm mínútunum.
En í vikunni þurfum við Steinar að fara að redda pössun fyrir litla barnið okkar hann Champ... því að eins og ég var búin að segja áður erum við að fara til Noregs eftir einn og hálfan mánuð.
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili !
Kveðja
Anna Francesca
Champ varđhundur Sólheimakots ;)Anna Francesca

Er bloggleysi ekki orðið alvarlegt þegar fólk (una) er byrjað að senda manni sms og minna mann á að maður þurfi nú að fara að blogga !
En ég get ekki sagt að ég sé eitthvað voðalega spennt fyrir því að blogga !
Þegar maður er hættur að geta sagt skoðanir sínar án þess að allt fari í háa loft þá missir maður bara áhugann, svo að ég er að spá í að hætta bara að blogga og eyða tímanum í að gera eitthvað gáfulegra... ég þarf aðeins að íhuga þetta betur!
En ég er á fullu í prófum... akkurat þegar ég hef eiginlega ekki tíma til þess að vera í skólanum.
Sýning framundan, örorkumat í dag, sýningarþjálfanir og ræktin.
En ég verð að vera skipulögð og láta skólann ganga fyrir því að ég þarf að eiga sem minnst eftir áður en við flytjum út til Svíþjóðar. Það sem ég á eftir af náminu tek ég bara í fjarnámi.
Það var svokallað "sleep-over" upp í Sólheimakoti á laugardaginn fram á sunnudag og skemmtum við okkur bara mjög vel... mikið af nammi og pizzum!
Steinar fór að djamma á laugardaginn með Guðnýju og Hjalta í Slefkofanum og svo að Champ þyrfti ekki að vera einn fram á morgun kom Steinar bara með Champ til mín og hann lúllaði hjá okkur upp í Sólheimakoti :)
Champ var ekkert smá ánægður með það enda fékk hann að vera úti allan sunnudagsmorguninn að leika við krakkana.... svo var hún Rán svo rosalega góð að taka myndir af honum Champ fyrir mig !
Á sunnudeginum klukkan 16 byrjuðu svo sýningarþjálfanirnar.
Fyrst voru ungir sýnendur og maður var varla byrjaður að kenna og þá var bara tíminn búinn en svo komu tegundirnar eftir það og það var rosalega góð mæting !
Dagskrá sýningarinnar er komin út og leit hún ekki svo vel út fyrir mig... Huskyinn, Pointerinn og Schaferinn er á sama tíma.
þannig að Ágústa ætlar að sýna pointerinn fyrir mig og mamma bjargar sér með Huskyana.
Í gærkvöldi fórum við Steinar á Selfoss og kíktum á nýfætt barn Magga og Gerðar og jedúddamía hvað litli drengurinn var guðdómlega fallegur !
Hann verður skírður núna bráðlega og ég held að mig gruni hvað hann á að heita... en það kemur bara í ljós í skírninni.
Ég og Steinar erum að fara á Nordisk winner í Hamar (Noregi) 17-19 november og hlakkar okkur ekkert smá til !
.... kominn tími til að maður skelli sér erlendis á hundasýningu !
En ég kveð í bili... þarf að fara að undirbúa mig fyrir örorkumatið... fá mér að borða og svoleiðis!
Anna Francesca
Erfitt ađ blogga... en tókst samt !Anna Francesca

Annarar einkunnar hundur.. HVAÐ ! Hann er bara gullfallegur þessi hundur !
Að sjálfsögðu er þetta hann Þórshamar Týri sem príðir fyrstu mynd bloggsins að þessu sinni ! Un-bun er svo dugleg að taka myndir af drengnum og ég get ekki séð að honum leiðist þessar endalausu myndatökur heheh ! Un-bun er líka algjör snillingur að taka myndir !
En...
Þið haldið nú vonandi ekki að ég sé hætt í ræktinni því að ég nefndi það ekki í síðasta bloggi... nei mín er sko alveg á fullu !
Ég og Íris förum í ræktina á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og föstudögum og svona reynum ef við getum um helgar.
Við sleppum miðvikudögunum því að ég er í 2 íþróttaáföngum í skólanum og auðvitað þurftu þeir að lenda á sama deginum... miðvikudögum!
Ég fer svo í sjúkraþjálfun þrisvar sinnum í viku... mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum.
Ég er reyndar svolítið slösuð núna, ég fór í sjúkraþjálfun í dag og ég sagði sjúkraþjálfaranum mínum að ég er alltaf að versna í höndinni.
Það lýsir sér þannig að ég get ekki haldið henni uppi, sérstaklega ef ég er ekki að halda á neinu... ég t.d. get ekki stýrt bílnum með hægri höndinni, hún lekur bara niður og ég missi máttinn. Þetta er mjög óþægilegt því að þetta háir mér mikið t.d. í skólanum og öllu þessu sem ég er í !
Hann skoðaði höndina vel, potaði og ítti... mjög sárt en hann grunar að það hafi rifnað vöðvi þarna í höndinni í bílslysinu og það hafi myndast mikil bólga... sem ég reyndar vissi af og þessi bólga er ekki búin að hjaðna og lítur ekki út fyrir að vera að hjaðna. Ég þarf að fara í myndatöku og eitthvað vesen, ég vona innilega að ég þurfi ekki að fara í aðgerð út af þessu en ég þarf þess ef þeir þurfa að laga vöðvann svo að bólgan nái að hjaðna.
Ég er alveg extra lengi að skrifa þetta blogg því að ég get bara skrifað með annarri höndinni. En vonandi fer þetta bara að lagast að sjálfu sér því að ég hef ekki tíma til að vera frá skólanum og frá vinnu !
Það er brjálað að gera, svo er maður náttúrulega í skólanum á fullu!
En ég ætla að koma mér í form fyrir sýninguna í oktober... allaveganna ná einhverju af mér ! Og ég er strax farin að sjá mun !
Það lítur út fyrir að ég verði með fjöldann allan af hundum allt saman hlaupahundar nema 2 ! Dísa vinkona hringir í mig og segir ... já þessi skráði og hann bætist við ! Það þarf virkilega að klóna okkur tvær til þess að komast í það að sýna alla þessa Schafera !
Næstu sýningu ætla ég að geta hlaupið endalaust !
Ég ætla að byrja að fara í sund fljótlega og synda voðalega mikið, það eykur svo þolið ... og svo er það svo gott fyrir líkamann ! En ég vona að ég verði jafn góð í því og Týri og Champ...
Ég fékk senda mynd af Týra frá Unu að sjálfsögðu og með henni stóð að Una hafði ekki einu sinni tækifæri til þess að losa tauminn af Týra... hann var bara kominn út í og byrjaður synda ! Champ er svona líka... hann elskar vatn !
Og svo Týri sundhundur...
Ég var að skoða gamlar myndir, ég rakst á eina mynd af mér og Sól.. svona þegar ég gat hlaupið endalaust og var, já... í mun betra formi 
Þessi mynd var tekin í júní 2003 !
Er þetta ekki málið fyrir næstu sýningu... að geta hlaupið endalaus og líta vel út og líða vel ! Það finnst mér allaveganna !
En á morgun þarf ég að skrópa í ræktinni, ég þarf að hvíla höndina og líkamann allan held ég bara. Við Steinar ætlum að taka það líka bara rólega og sitja yfir lærdómi á morgun.
Á laugardaginn hefst svo fjörið...
Ég, Bára Cocker/Griffon og Bryndís Cocker ætlum að hefja daginn á að fara í göngutúr í kring um Elliðavatnið klukkan hálf níu um morguninn.
Síðan fer ég upp í Sólheimakot því að þar verður "Sleep-over" á vegum Unglingadeildarinnar. Mikið fjör og mikið gaman!
Unglingadeildin ætlar sem sagt að gista upp í Sólheimakoti og það verður brjálað fjör allan daginn, dagskrá og læti !
Síðan á sunnudeginum á ég að mæta í vinnu klukkan átta um morguninn en ég veit ekki alveg hvernig það blessast en svo klukkan 16-20 verður síðan sýningarþjálfun upp í Víðidal ! Eftir sýningarþjálfunina langaði mig að fara í Laugar en ég veit ekki hvort ég fer því að ég er að fara í mjög erfitt próf á mánudaginn!
Svo auðvitað á mánudeginum er hundafimin hjá Unglingadeildinni, en hundafimin gengur alveg svakalega vel ! Ég er búin að mæta á allar æfingarnar nema eina og skemmti ég mér alveg konunglega og vildi ég óska að ég væri með hund í hundafimi. En ég fer í þetta þegar ég flyt út og komin með hvolp í hendurnar sem ég get hægt og rólega byrjað að þjálfa.
En það fylgir líka mynd úr hundafiminni...
En nú er ég að drepast í höndinni eftir að hafa skrifað þetta allt saman, ég lofa bloggi innan skamms !
Kv. Anna Francesca
Brjálađ ađ gera hjá kjéllllingunni !Anna Francesca

Jæja ég er búin að komast að því að ég get hreinlega ekki bloggað af Opera !
Þannig að núna er ég inn á Internet Explorer og að blogga þar !
En jæja þið viljið einhverjar fréttir býst ég við...
*Skólinn ... já, já alveg brjálað að gera í honum skal ég segja ykkur, á þriðjudögum og fimmtudögum er ég frá átta á morgnanna til hálf átta á kvöldin, er bæði í dagskóla og kvöldskóla. Aðra daga er ég frá átta til fjögur nema á föstudögum því þá er ég bara til hádegis eins og allir aðrir nemendur í skólanum!
kennararnir eru að tapa sér í að setja mikið heimanám fyrir og ég er búin að fara í nokkur próf þó að það sé bara 3 vika!
*Heilsan : Ég og Íris vinkona erum byrjaðar í ræktinni... World Class réttara sagt ! Við byrjuðum í dag, tókum líklegast of mikið á því svona miða við fyrsta daginn! Áætlunin er að verða úber miklar gellur og auðvitað bara að líða betur með bættri heilsu. Þetta er ekki allt... ég er líka byrjuð aftur í sjúkraþjálfun og líkar bara vel við nýju sjúkraþjálfunina.
*Hundalífið : Eins og allir ættu að vita þá er skráningarfresturinn á oktober sýninguna búinn og vonandi að allir hafi náð að skrá sem ætluðu sér það.
Ég sé ekki betur en að ég sé að fara að hlaupa þarna ófáa hringi á sýningunni enda hún Dísa alveg óð í að láta á mig hunda... enda allt topp hundar !
Sól og Jörð voru sæddar með innfluttu frosnu sæði fyrir tæpum 2 mánuðum síðan og því miður gekk það ekki sem skildi og eru þær ekki hvolpafullar... svona er þetta víst.
Sýningarþjálfanirnar alveg komnar á full og getiði ath. það betur inn á www.hrfi.is .
Síðustu helgi var terrier sýning HRFI og næstu helgi er Deild Íslenska fjárhundsins með sýningu. Ég sýni þrjá hunda á þeirri sýningu.
Hundafimi Unglingadeildarinnar alveg komin á fullt skrið skal ég segja ykkur og finnst krökkunum þetta alveg æðislegt !
Agility er eitthvað sem ég ætla að fara að skoða betur !
Við erum komin í fullt samband við ræktanda úti sem ég er mjög spennt fyrir að fá hvolp hjá! Og getiði nú hvaða tegund !
*Svíþjóð : Sweden here we come !!!
Við skötuhjúin flytjum næsta sumar, vonandi snemma og bara vonandi strax eftir að við erum búin í skólanum. Steinar útskrifast sem jarðlandfræðingur næsta vor og ég vonandi búin með sem mest af skólanum!
Ég bara hreinlega get ekki beðið ! Fullt af ævintýrum!
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili elskurnar... best að fara að læra eitthvað í hausinn á sér !
Kv. Anna Panna í hörku stuði :D
P.s. læt fylgja með mynd af Sól sem tekin var þegar amma og afi fóru með hundana í útileigu;)
Anna pirrrrr...Anna Francesca
Jæja, Anna litla er pirrrrrruð núna !Steinar fór á fimmtudaginn á Snæfellsnes með hann Champ okkar.
Þið veltið líklegast fyrir ykkur hvað Steinar er að gera á Snæfellsnesi með hann Champ ... Þeir feðgar eru á námskeiði á vegum Hundaskólans Hundalíf.
Þeir koma ekki aftur fyrr en á morgun.
Önnu litlu datt það snjallræði í hug í gær að fara í dag og heimsækja Steinar og Champ og vera líklegast yfir eina nótt.
Nei, nei, svo kíkir Anna litla inn á heimabankann og viti menn... hún er á kúpunni !
Þannig að draumurinn um að komast til Steinars og Champ er úti !
Og ég á eftir að kaupa skólabækur sem by the way eru rándýrar !
Og ég var að borga mig inn í kvöldskóla sem er by the way rándýr !
Og ég var að borga af bílnum mínum sem mig langar by the way bara að selja því að það er ógeðslega dýrt að eiga bíl í dag !
Og by the way, ég á engin föt...
Ég þarf að kaupa mér í vikunni eitt stykki gallabuxur en mig langar ekki að kaupa þær því að ég hef fitnað svo rosalega að það eru örugglega bara ekki til gallabuxur í minni stærð !
Hvar kaupir maður eitt stykki sjálfsaga ?
Getiði sagt mér það ?
Ég er búin að fara í rosalega langa göngutúra undanfarna daga í þeim hugleiðingum að grenna migog samt... og samt ét ég nammi eins og ég fái borgað fyrir það !
Og hversu pirrandi er það að þegar maður er búinn að breyta um lögheimili að maður þarf að breyta heimilisfanginu allsstaðar líka, ég fæ ennþá póstinn minn heim til mömmu ! Geta þeir ekki séð þetta að maður er búinn að breyta um lögheimili ?
Ég ætlaði að fara í morgun og senda e-mail um allan bæ og segja þeim að ég sé búin að breyta um lögheimili... bankanum mínum, HRFI, skólanum og fleirum !
Nei... ég kemst ekki inn á póstinn minn !...
Jæja, ég var að fá símtal um að það er Chihuahua hundur búinn að vera týndur hérna í þorpinu í alla nótt og við Dimma erum farnar út að leita!
Kveð að sinni...
Anna Pirrrrr

